María mey situr við eldhúsborðið sitt og starir í kaffibollann. Hún hlustar annars hugar á útvarpið (stilla á 9:15 - ) en heyrir síðan nokkuð sem veldur henni miklu hugarangri. Í útvarpinu er viðtal við prófessor sem gagnrýnir Landsvirkjun fyrir að búa svo um að hugsanlegt hamfaraflóð fari inn í Þjórsárver og telur að betra sé að flóðvatnið fari sinn eðlilega farveg niður Köldukvísl og Þjórsá með tilheyrandi flóðum á Skeiðunum.

María hugsar með sér að hún verði eitthvað að gera í þessu því þessir möguleikar eru ómögulegir – það væri sorglegt að sökkva Þjórsárverunum en einnig sorglegt að skepnurnar drukkni.