Þar sem þær sitja á fjallinu Þrándi hafa þær gott útsýni yfir Skeiðin. María mey útskýrir fyrir Líkný þessa miklu hættu sem vofir yfir Skeiðunum – að þarna séu afar búsældarlegar jarðir og fjölmargir bóndabæir þar sem skepnur eru og þær eigi sé enga undankomu auðið verði stór hamfaraflóð.
,,Ímyndaðu þér bara að þú sért kýr í fjósi og hvað það sé andstyggilegt þegar vatnið fer að streyma inn í fjósið og það hækkar og hækkar en þú kemst ekki út því það eru allar dyr lokaðar.. eða fylfull hryssa sem er að reyna að synda að næsta hól sem stendur uppúr en þú kemst ekki og drukknar því þú sérð ekki girðinguna sem þú festir lappirnar í á sundinu.“
