Tröllskessurnar taka nú til sinna ráða og æða upp að Köldukvíslarbotnum og taka við að drekka flóðvatnið sem nú greinilega er farið að aukast verulega. Þær drekka óhemjumikið og blása út líkt og blöðrur til að geta tekið við vatninu. Bjólfellsskessan tekur líka pott sinn sem virðist gleypa meira vatn en stærð hans gefur til kynna. Þær kjaga síðan upp á jökulinn.